Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. júní 2019 17:25
Ívan Guðjón Baldursson
HM kvenna: Þýskaland sló Nígeríu úr leik
Mynd: Getty Images
Þýskaland 3 - 0 Nígería
1-0 Alexandra Popp ('20)
2-0 Sara Dabritz ('27, víti)
3-0 Lea Schuller ('82)

Þýskaland lenti ekki í erfiðleikum gegn Nígeríu í fyrsta leik 16-liða úrslita HM kvenna.

Þjóðverjar stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda en leikmenn Nígeríu börðust allan leikinn og komust nálægt því að skora.

Alexandra Popp gerði fyrsta markið með skalla eftir hornspyrnu og tvöfaldaði Sara Dabritz forystuna með marki úr vítaspyrnu.

Lea Schuller gerði út um viðureignina á lokakaflanum eftir mistök í varnarleik Nígeríu. Vinstri bakvörðurinn gaf skelfilega sendingu til baka sem Schuller komst inn í.

Þýskaland mætir annað hvort Svíþjóð eða Kanada í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner