Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. júní 2019 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmaður Nígeríu féll í yfirlið á æfingu
Mynd: Getty Images
Samuel Kalu mun ekki leika með Nígeríu í fyrsta leik liðsins í Afríkukeppninni sem haldin er í Egyptalandi. Nígería mætir Búrúndí klukkan 17:00 í dag.

Kalu féll í yfirlið á æfingu í gær. Orsökin er ofþornun. Hann var fluttur á sjúkrahús en ástand hans er núna stöðugt.

Kalu er 21 árs gamall kantmaður sem leikur með Bordeaux í frönsku úrvalsdeildinni.

Mikill hiti er í Egyptalandi um þessar mundir og spáð er að hitastigið muni ná upp í allt að 40 gráður meðan á mótinu stendur.

Sjá einnig:
Vilja fjögur vatnshlé í leikjum Afríkukeppninnar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner