Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 22. júní 2019 08:00
Oddur Stefánsson
Heimild: talkSport 
Rafa Benítez mun aldrei vera fyrirgefið ef hann fer
Mynd: Getty Images
Steve Harmison sem hefur verið stuðningsmaður Newcastle alla sína ævi sagði í viðtali við TalkSport að Rafa Benítez yfði aldrei fyrirgefið ef hann færi núna frá félaginu.

Harmison segir þó að hann haldi að Benítez muni vera um kyrrt hjá Newcastle.

Það eru níu dagar eftir af samningi Rafa Benítez og ekki enn búið að semja um nýjan. Síðustu daga hefur Benítez verið orðaður við kínversku úrvalsdeildina.

Mikið hefur verið rætt um ósætti milli Benítez og Mike Ashley eiganda Newcastle sem hefur ekki veitt Benítez það fjármagn sem hann vill.

Frændi Sheik Mansour eigandi Manchester City hefur verið orðaður við að taka við af Mike Ashley sem eigandi Newcastle.

Stuðningsmenn Newcastle hafa lengi óskað eftir að Mike Ashley selji klúbbinn.
Athugasemdir
banner
banner