Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 22. júní 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Sóknarmaður Leeds varði skot liðsfélaga síns á línu
Mynd: Getty Images
Leeds tapaði 2-0 fyrir Cardiff í Championship-deildinni á Englandi í gær.

Þetta var fyrsti leikur Leeds eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á, en liðið glataði tækifæri til að komast aftur á topp deildarinnar með tapi í þessum leik.

Patrick Bamford, sóknarmaður Leeds, átti ekki góðan dag. Það var ekki nóg með það að honum tókst ekki að koma boltanum í netið því hann varði einnig skot á línu frá eigin liðsfélaga.

Það gerðist undir lok fyrri hálfleiks í stöðunni 1-0 fyrir Cardiff. Afar klaufalegt hjá Bamford, en myndband af þessu má sjá hérna að neðan.

Leeds er í öðru sæti Championship-deildarinnar, en liðið er að reyna að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa ekki verið í þeirri deild í 16 ár.

Patrick Bamford denies Leeds United a goal by blocking his teammates shot from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner
banner