Norðurálsmótið í 7. aldursflokki (7 og 8 ára) fór fram á Akranesi í 35. skipti um helgina. Mikil og góð stemmning einkenndi mótið. Alls tóku um 1.200 iðkendur þátt í mótinu.
Sú nýjung var í ár að sérstakt eins dags hraðmót fór fram fyrir 8. aldursflokk (5 og 6 ára) sl. fimmtudag. Tóku um 300 iðkendur þátt og var mikið líf og fjör á keppnissvæðinu þegar margir tóku þátt í skipulagðri keppni í fyrsta sinn.
Ekki varð ljóst fyrr en í maí að mótið gæti farið fram í ár en mótshaldið hefur verið aðlagað eins og kostur er að leiðbeiningum yfirvalda um sóttvarnir.
Norðurálsmótið er skipulagt á forsendum iðkenda með það í huga að allir séu með í leiknum til þess að skapa jákvæða og skemmtilega upplifun barna sem eru að stíga sín fyrstu skref í fótbolta.
Athugasemdir