Villarreal 2 - 2 Sevilla
1-0 Paco Alcacer ('18 )
1-1 Sergio Escudero ('39 )
2-1 Pau Torres ('45 )
2-2 Munir El Haddadi ('63 )
1-0 Paco Alcacer ('18 )
1-1 Sergio Escudero ('39 )
2-1 Pau Torres ('45 )
2-2 Munir El Haddadi ('63 )
Villarreal og Sevilla gerðu 2-2 jafntefli í spænsku deildinni í kvöld en bæði lið eru í baráttu um Evrópusæti.
Paco Alcacer kom Villarreal yfir á 18. mínútu en þetta var þriðja mark hans fyrir liðið á tímabilinu. Sergio Escudero jafnaði metin á 39. mínútu en það var svo Pau Torres sem sá til þess að Villarreal myndi leiða í hálfleik.
Muni El Haddadi jafnaði fyrir Sevilla á 63. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki. Lokatölur 2-2.
Sevilla er í 3. sæti með 53 stig á meðan Villarreal er í 7. sæti með 48 stig.
Athugasemdir