Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. júní 2020 21:29
Brynjar Ingi Erluson
Vertonghen og Vorm klára tímabilið með Tottenham
Jan Vertonghen klárar tímabilið með Tottenham
Jan Vertonghen klárar tímabilið með Tottenham
Mynd: Getty Images
Jan Vertonghen og Michel Vorm, leikmenn Tottenham Hotspur á Englandi, klára tímabilið með liðinu en félagið staðfesti þetta í tilkynningu í dag.

Leikmennirnir voru báðir með samning út júní en vegna áhrifa kórónuveirunnar þá var gert hlé á deildinni.

Deildin klárast því ekki fyrr en í lok júlí en Tottenham framlengdi í dag samninga við leikmennina.

Þeir munu báðir klára tímabilið með Tottenham en það má gera ráð fyrir því að þeir yfirgefi Tottenham eftir tímabilið.

Vertonghen hefur verið orðaður við mörg lið á Ítalíu undanfarnar vikur en Mourinho hefur engar áhyggjur af hugarfari hans.

„Jan er frábær náungi og alger fagmaður. Hann elskar þetta félag og ber mikla virðingu fyrir því svo ég efast ekki fagmennsku hans," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner