Nicolo Zaniolo, sóknarleikmaðurinn spennandi hjá Roma, nálgast endurkomu en samkvæmt fréttaskeytum frá Ítalíu lék hann í æfingaleik með unglingaliði félagsins.
Þessi tvítugi leikmaður skaddaði liðbönd í hné í janúar en er farinn að æfa á fullu.
Þessi tvítugi leikmaður skaddaði liðbönd í hné í janúar en er farinn að æfa á fullu.
Þetta eru gleðitíðindi fyrir Paulo Fonseca og hans menn en liðið á leik gegn Sampdoria á miðvikudaginn.
Áður en hann meiddist spilaði Zaniolo 24 leiki í öllum keppnum, skoraði sex mörk og átti tvær stoðsendingar.
Mörg stór félög horfa löngunaraugum til Zaniolo.
Athugasemdir