Þrettánda umferðin hefst í dag í Pepsi deild karla og er eins og áður Hilmar Árni (Stjörnunni) lang markahæstur með 13 mörk í fyrstu 12 leikjum sumarsins.
Á eftir Hilmari kemur Steven Lennon (FH) með 8 mörk og síðan þeir Pálmi Rafn (KR) og Patrick Pedersen (Val) með 7 mörk hvor. Ljóst er að þeir þurfa að gefa í ef reyna á að veita Hilmari Árna samkeppni um Gullskó adidas.

Markahæstu leikmenn Pepsi deildar karla eftir 12 umferðir:
13 mörk – Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
8 mörk – Steven Lennon (FH)
7 mörk - Pálmi Rafn Pálmason (KR)
7 mörk – Patrick Pedersen (Valur)
6 mörk – Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Athugasemdir