Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. júlí 2018 09:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ólafur Ingi kominn í Draumaliðsdeildina
Markaðurinn lokar klukkan 13
Ólafur Ingi er kominn í Fylki.
Ólafur Ingi er kominn í Fylki.
Mynd: GettyImages
Þrettánda umferðin í Pepsi-deild karla fer fram að mestu leyti í dag. Henni lýkur á morgun.

Þú getur gert breytingar á liði þínu í Draumaliðsdeild Eyjabita til klukkan 13:00 í dag en þá er klukkutími í fyrsta leik umferðarinnar.

Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason er kominn í Pepsi-deildina og hægt er að kaupa hann í Draumaliðsdeildinni. Félagskiptaglugginn er opinn og má búast við ágætum fjölda nýrra leikmanna áður en glugginn lokar 1. júlí.

Er wildcard málið núna?
Gerðu breytingar á þínu liði í tæka tíð! Ein breyting er að venju leyfileg á milli umferða en hægt er að gera fleiri breytingar á liði sínu með því að nota „wildcard" sem nota má einu sinni yfir tímabilið. Mótið er hálfnað. Ætlar þú að nota „wildcard" núna?

Leikir umferðarinnar

Í dag:
14:00 Fjölnir-ÍBV (Extra völlurinn)
16:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)
17:00 KA-Fylkir (Akureyrarvöllur)
17:00 KR-Stjarnan (Alvogenvöllurinn)
19:15 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)

Á morgun:
19:15 Grindavík-Keflavík (Grindavíkurvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner