Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 22. júlí 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace vill fá Reece James frá Chelsea
Mynd: Getty Images
Crystal Palace er eitt af þeim félögum sem hafa áhuga á Reece James leikmanni Chelsea.

Hinn 19 ára gamli James var öflugur á láni hjá Wigan á síðasta tímabili en hann spilaði 45 leiki í Championship deildinni.

Palace og fleiri félög hafa áhuga á James en ólíklegt er þó að Chelsea selji hann í sumar.

James er fjarri góðu gamni þessa dagana vegna meiðsla á hné en hann mun síðan reyna að brjótast inn í aðallið Chelsea hjá Frank Lampard.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner