Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. júlí 2019 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Griezmann: Var einu sinni nálægt því að fara í úrvalsdeildina - Hrifinn af Liverpool
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann gekk á dögunum í raðir Barcelona frá Atletico Madrid.

Griezmann hafði verið orðaður við Börsunga í allt sumar og tilkynnti í vor að hann myndi yfirgefa Atletico.

Hann var á dögunum í stuttu spjalli, sem Sky Sports birti í dag, spurður út í hvort hann hefði á einhverjum tímapunkti verið nálægt því að ganga til liðs við félag í ensku úrvalsdeildinni.

„Það gerðist einu sinni næstum því en ég er mjög hrifinni af sólinni hér á Spáni," sagði Griezmann sem var einnig spurður að því hvaða leikmanni í úrvalsdeildinni hann vildi mest spila með og hvaða lið hann héldi mest upp á í deildinni.

„Alexandre Lacazette er leikmaður sem ég er mjög hrifinn af, hann er vinur minn og við spilum saman í landsliðinu."

„Ég er hrifnastur af Liverpool vegna stuðnngsmannanna. Vonandi vinnur félagið deildina fljótlega,"
endaði Griezmann stutta spjallið á.
Athugasemdir
banner
banner
banner