Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. júlí 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Hazard spilaði í treyju númer 50 í fyrsta leik með Real Madrid
Hazard í leiknum um helgina.
Hazard í leiknum um helgina.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard spilaði í treyju númer 50 í fyrsta leik sínum með Real Madrid þegar liðið tapaði 3-1 gegn Bayern Munchen í æfingaleik um helgina.

Hazard hefur ekki ennþá valið sér treyjunúmer fyrir tímabilið en hann var í treyju númer 50 um helgina til að minnast þess að 50 ár eru liðin síðan Neil Armstrong steig fyrstur manna fæti á tunglið.

Hazard kom til Real Madrid frá Chelsea í sumar og fékk þau skilaboð þá að Luka Modric er ekki tilbúinn að láta treyju númer 10 af hendi hjá Real.

Belginn ku sjálfur ekki vilja taka treyju númer 7 sem Cristiano Ronaldo var áður með.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner