Juan Mata vonast til að Paul Pogba verði áfram í herbúðum Manchester United en hann segir að Frakkinn hafi jákvæð áhrif í andann í leikmannahópnum.
Pogba hefur verið orðaður við Juventus og Real Madrid í sumar en nú lítur út fyrir að hann verði áfram hjá United.
„Við þekkjum allir Paul. Hann er stórkostlegur miðjumaður, mjög góður náungi og jákvæður. Hann hefur góð áhrif á alla," sagði Mata.
„Ég held að hann sé ánægður og sameini alla hjá félaginu. Ég get samt ekki talað fyrir aðra heldur bara mig sjálfan."
„Sem liðsfélagi og vinur vonast ég til að hann verði áfram og verði ánægður því hann er mjög góður leikmaður fyrir okkur."
Athugasemdir