Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. júlí 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Matuidi má yfirgefa Juventus í sumar
Mynd: Getty Images
Blaise Matuidi hefur fengið þær upplýsingar frá stjórnarmönnum Juventus að hann megi yfirgefa félagið nú í sumar.

Juventus hefur farið mikinn á félagsskiptamarkaðnum í sumar og nú er komið að því að losa leikmenn frá félaginu.

Aaron Ramsey og Adrian Rabiot eru báðir nýkomnir til félagsins og þeir gætu báðir ollið því að Matuidi fái ekki margar mínútur í vetur.

Nokkur lið eru sögð áhugasöm um leikmanninn en Mónakó er nú að undirbúa tilboð í kappann.

Ítalskir fjölmiðlar halda því fram að Matuidi sé spenntur fyrir því að spila í heimalandinu á nýjan leik.
Athugasemdir
banner
banner