Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. júlí 2019 08:48
Magnús Már Einarsson
Sjáðu rosalegt brot á leikmanni Liverpool
Gnagon biðst afsökunar - Larouci ekki illa meiddur
 Joris Gnagnon hamraði Yasser Larouci niður.
Joris Gnagnon hamraði Yasser Larouci niður.
Mynd: Getty Images
Sevilla lagði Liverpool 2-1 í æfingaleik í Bandaríkjunum í gærkvöldi en helsta umræðuefnið eftir leik var brot Joris Gnagnon á Yasser Larouci, leikmanni Liverpool, sem var aðal umræðuefnið eftir leik.

Gnagon var ósáttur við að hinn 18 ára Larouci stöðvaði ekki leikinn þegar leikmaður Sevilla var meiddur. Gnagon negldi Larouci niður og fékk rauða spjaldið fyrir vikið.

Larouci var borinn af velli en samkvæmt fyrstu fréttum eru meiðsli hans þó ekki alvarleg.

„Ég vil biðja félagið Liverpool, fjölskyldu leikmannsisn og stuðningsmenn afsökunar. Þessi ljóta hegðun á ekki að sjást á fótboltavelli, sama hver ástæðan er. Ég sendi allar mínar bestu kveðjur til leikmannsins og fjölskyldu hans," sagði Gnagon þegar hann baðst afsökunar á Twitter.

Hér að neðan má sjá brotið af vef Vísis.


Athugasemdir
banner
banner
banner