Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. júlí 2019 18:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svíþjóð: Aron Jó spilaði sinn fyrsta leik fyrir Hammarby
Mynd: Twitter
Hammarby 5-2 Elfsborg

Hammarby tók í dag á móti Elfsborg í sænsku Allsvenskan. Leikurinn var liður í 16. umferð deildarinnar.

Aron Jóhannsson, sem spilaði með Fjölni á yngri árum auk þess að leika með Breiðablik í eitt ár í yngri flokkum, gekk á dögunum í raðir Hammarby á frjálsri sölu frá Werder Bremen.

Aron hefur undanfarið æft með Hammarby og kom við sögu í dag. Hann byrjaði á varamannabekknum en spilaði síðustu 20 mínutur leiksins. Hammarby var komið í 5-2 þegar Aron kom inn á og sú staða hélst út leikinn.

Sigurinn fleytti Hammarby upp í 6. sæti deildarinnar og þar hefur liðið 28 stig eftir leikina 16.

Sjá einnig:
Útvarpsþátturinn - Aron Jó og boltaspjall.
Athugasemdir
banner
banner
banner