Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. júlí 2019 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Þrjú spænsk lið á eftir Ben Arfa
Mynd: Getty Images
Hatem Ben Arfa gæti fært sig um set í sumar en þrjú spænsk úrvalsdeildarfélög eru á eftir leikmanninum.

Ben Arfa spilaði með franska liðinu Rennes á síðasta tímabili en samningur hans við félagið rann út eftir leiktíðina.

Hann hefur nú verið án félags í rúmlega mánuð en Espanyol, Real Betis og Leganes eru sögð áhugasöm um leikmanninn.

Talið er að Ben Arfa sé með ansi háar launakröfur og því ekki víst að þessi lið ráði við það að hafa hann á launaskrá.

Ben Arfa skoraði níu mörk í 26 leikjum á leiktíðinni ásamt því að leggja upp þrjú.
Athugasemdir
banner
banner
banner