mán 22. júlí 2019 12:46
Magnús Már Einarsson
Toby Alderweireld reiknar með að vera áfram hjá Tottenham
Stefnir á að spila áfram með Tottenham.
Stefnir á að spila áfram með Tottenham.
Mynd: Getty Images
Toby Alderweireld, varnarmaður Tottenham, reiknar með að spila áfram með liðinu á komandi tímabili. Alderweireld er með 25 milljóna punda riftunarverð í samningi sínum en sú klásúla dettur úr gildi á fimmtudaginn.

Roma hefur sýnt Alderweireld áhuga en hann reiknar sjálfur með að vera áfram hjá Tottenham.

„Einbetigin mín er þar. Þetta getur verið fljótt að gerast en ég er að einbeita mér að Spurs og verða klár fyrir næsta tímabil," sagði Alderweireld eftir sigur Tottenham á Juventus um helgina þar sem hann var fyrirliði.

„Stjórinn veit að ég er trúr félaginu en þú veist aldrei í fótbolta. Gegn Juventus var ég fyrirliði og það sýnir að þjálfarinn ber traust til mín og ég er að sýna rétta hugarfarið."

„Auðvitað gæti eitthvað gerst en einbeiting mín er á Spurs og í höfði mínu ætla ég að spila með Spurs."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner