banner
   mið 22. júlí 2020 19:18
Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið KR og Fjölnis: Óskar Örn og Alex Freyr byrja
Óskar byrjar fyrir KR.
Óskar byrjar fyrir KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarliðin í leik KR og Fjölnis eru klár en leikurinn hefst klukkan 20:15 á Meistaravöllum í Vesturbænum. Íslandsmeistararnir eru á toppnum með 15 stig en Fjölnismenn eru á botni deildarinnar og eru í leit af sínum fyrsta sigri í deildinni.

KR gerir tvær breytingar frá sigrinum á Fylki í síðustu umferð. Alex Freyr Hilmarsson og Óskar Örn Hauksson koma inn og Kristinn Jónsson og Stefán Árni Geirsson detta út úr liðinu. Stefán Árni meiddist í síðasta leik og líklega er Kristinn það líka þar sem hann er ekki í hóp.

Viktor Andri Hafþórsson kemur inn í lið Fjölnis frá tapinu gegn FH. Út úr liðinu fer Ingibergur Kort Sigurðsson.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
8. Finnur Orri Margeirsson
10. Pálmi Rafn Pálmason (f)
11. Kennie Chopart
16. Pablo Punyed
17. Alex Freyr Hilmarsson
18. Aron Bjarki Jósepsson
21. Kristján Flóki Finnbogason
22. Óskar Örn Hauksson
23. Atli Sigurjónsson

Byrjunarlið Fjölnis:
12. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
4. Sigurpáll Melberg Pálsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
8. Arnór Breki Ásþórsson
10. Viktor Andri Hafþórsson
20. Peter Zachan
21. Christian Sivebæk
23. Örvar Eggertsson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson
31. Jóhann Árni Gunnarsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner