Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 22. júlí 2020 22:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Drekkið það sem þið viljið - Undirbúið ykkur svo fyrir veislu"
Klopp eldhress.
Klopp eldhress.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var glaður í bragði eftir að Liverpool lyfti enska meistarabikarnum í kvöld.

Liverpool tryggði sér titilinn fyrir nokkrum vikum en bikarinn fór á loft eftir síðasta heimaleikinn í deildinni áðan. Liverpool vann þá 5-3 sigur á Chelsea.

„Þetta er frábært augnablik. Þetta hefur allt snúist um stöðugleika," sagði Klopp við Sky Sports.

„Ég var reiður í gegnum leikinn og það var ekki planið mitt. Ég lenti í rifrildi við Frank Lampard og eitthvað svona. Það var ekki planið."

Það voru engir stuðningsmenn á vellinum vegna kórónuveirufaraldursins. Klopp var með skilaboð til þeirra.

„Drekkið það sem þið viljið, en svo verðið þið að undirbúa ykkur fyrir veislu. Ég veit ekki alveg hvenær - þegar þessi helvítis vírus er búinn. Þá höfum við veislu, öll saman," sagði Þjóðverjinn eldhress.


Athugasemdir
banner
banner
banner