Það er kominn hálfleikur í leik Liverpool og Chelsea á Anfield.
Það er ekkert undir fyrir Liverpool sem mun taka á móti meistaratitlinum eftir leik. Chelsea, hins vegar, þarf stig út úr leiknum til að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir lokaumferðina.
Það er ekkert undir fyrir Liverpool sem mun taka á móti meistaratitlinum eftir leik. Chelsea, hins vegar, þarf stig út úr leiknum til að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir lokaumferðina.
Staðan í hálfleik er 3-1 fyrir Liverpool sem ætlar að enda tímabilið á heimavelli með stæl.
Naby Keita og Trent Alexander-Arnold skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins og voru þau bæði mjög svo flott.
Þau má sjá með því að smella hérna og smella hér.
Georginio Wijnaldum gerði þriðja markið sem má sjá hérna áður en Olivier Giroud minnkaði muninn. Mark Frakkans má sjá hérna.
Það er brekka fyrir Chelsea í seinni hálfleik en mark Giroud gerir hlutina aðeins betri.
Athugasemdir