Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. júlí 2020 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stilltu upp sameiginlegu byrjunarliði Vals og Breiðabliks
Hlín og Elín Metta eru í báðum liðum.
Hlín og Elín Metta eru í báðum liðum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóley og Berglind Hrund.
Sóley og Berglind Hrund.
Mynd: HMG
Eins og síðustu ár þá eru Breiðablik og Valur tvö bestu lið landsins í kvennaboltanum.

Þessi tvö lið mættust í deildinni í gær og vann Breiðablik þá stórkostlegan 4-0 sigur.

Fyrir leikinn var hitað upp í hlaðvarpsþættinum Heimavöllurinn. Gestir þáttarins Sóley Guðmundsdóttir og Berglind Hrund Jónasdóttir, sem báðar léku með Stjörnunni í fyrra.

Undir lok þáttarins bað þáttastýran Hulda Mýrdal þær um að velja sameiginlegt lið Breiðabliks og Val með þeim leikmönnum sem gátu tekið þátt í leiknum í gær. Stillt var upp í 4-4-2.

Berglind valdi átta Valskonur og þrjá úr Breiðabliki á meðan Sóley valdi sex úr Val og fimm úr Breiðabliki. Hér að neðan má sjá liðin tvö.



Heimavöllurinn: Dramatík í Pepsi Max og upphitun fyrir stórleik kvöldsins
Athugasemdir
banner
banner
banner