Þrjátíu ára bið er á enda hjá Liverpool. Liðið er meistari og lyfti Jordan Henderson, fyrirliði, bikarnum núna rétt í þessu.
Liverpool tryggði sér titilinn fyrir nokkrum vikum en bikarinn fór á loft eftir síðasta heimaleikinn í deildinni áðan. Liverpool vann þá 5-3 sigur á Chelsea.
Þessi titill er algerlega verðskuldaður. Jurgen Klopp er búinn að byggja upp magnað lið, það besta á Englandi.
Enn og aftur, til hamingju stuðningsmenn Liverpool! Njótið kvöldsins.
CONGRATULATIONS LIVERPOOL! 🏆🍻
— Football Hub (@FootbalIhub) July 22, 2020
pic.twitter.com/wD87BvZXVE
Athugasemdir