Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. ágúst 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin í dag - Ajax mætir Dynamo Kiev í beinni
Mynd: Twitter
Það fara þrír leikir fram í undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld og verður einn þeirra sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Það er Ajax sem tekur á móti Dynamo Kiev í beinni útsendingu og um sannkallaðan stórleik að ræða þar sem bæði lið yrðu vonsvikin með að komast ekki í riðlakeppnina.

MOL Vidi frá Ungverjalandi tekur á móti AEK frá Aþenu á meðan Young Boys mætir Dinamo Zagreb.

Fyrri leikirnir eru í kvöld en síðari leikirnir eftir viku. Sigurliðin vinna þátttökurétt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Leikir kvöldsins:
19:00 Ajax - Dynamo Kiev (Stöð 2 Sport)
19:00 MOL Vidi - AEK Aþena
19:00 Young Boys - Dinamo Zagreb
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner