Brynjar Gestsson var að vonum svekktur með leik sinna manna en ÍR tapaði 3-2 fyrir Magna á Hertz-vellinum í dag og uppskera sæti í 2. deild á næsta tímabili.
Lestu um leikinn: ÍR 2 - 3 Magni
„Þetta var bara hörku leikur, vorum svolítið klaufalegir og vorum með leikinn í okkar höndum en þetta skallamark hjá Gunnari undir lok fyrri hálfleiks gegn gangi leiksins setur blóð á tennurnar hjá þeim, svo veit ég ekki hvað gerist í seinni hálfleik við erum bara daufir og það lítur ekki út fyrir að við séum að berjast fyrir lífi okkar.'' Voru fyrstu viðbrögð Binna eftir leikinn.
„Við koðnum bara niður í seinni hálfleik, það var engin breyting á Magnamönnum við bara vorum stressaðir, eitthvað sem sást ekki í fyrri hálfleik, svo þegar þú klárar ekki færin þín þá er alltaf möguleiki á að tapa.'' Sagði Binni spurður út í hvað gerðist í hálfleik, en það var allt annað ÍR lið sem mætti til leiks í seinni hálfleik.
„Ég er þannig gerður að maður þarf að þrífa upp skítinn eftir sig er það ekki? Ég tek jafn mikla ábyrgð og aðrir, við höfum fengið fullt af sénsum til að koma okkur úr þessari stöðu en þegar maður skítur upp á bak þá skeinir maður sér og maður þrífur upp eftir sig.'' Sagði Binni aðspurður hvort hann haldi áfram með liðið í 2. deildinni.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir