Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Vendsyssel FF annan leikinn í röð, en hann lagði upp í sínum fyrsta byrjunarliðsleik hjá félaginu.
Jón Dagur spilaði 72 mínútur í dag í tapi gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í dag..
Leikurinn endaði með 2-0 sigri heimamanna í Randers en staðan var orðin 2-0 þegar Jóni Degi var skipt út af.
Jón Dagur er í láni hjá Vendsyssel frá Fulham í Englandi. Hann er kominn til Danmerkur til að spila aðalliðsfótbolta.
Vendsyssel er í 12. sæti, af 14 liðum, með níu stig að loknum 10 leikjum.
Athugasemdir