Rúnar Alex Rúnarsson og félagar í Dijon gerðu markalaust jafntefli við Reims í frönsku úrvalsdeildinni í dag.
Rúnar kom til Dijon frá Nordsjælland í sumar og er þegar farinn að heilla í Frakklandi.
Hann hélt hreinu í dag og var það þriðji leikur hans sem hann heldur hreinu í deildinni.
Dijon er í 6. sæti með 10 stig eftir sex leiki.
Athugasemdir