Ísak Bergmann Jóhannesson varð í dag yngsti leikmaður í sögu félagsins er hann kom við sögu í lokaleik umferðarinnar í Inkasso-deildinni.
Ísak, sem er fæddur árið 2003, er einn af efnilegri leikmönnum landsins en faðir hans er Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA.
Jóhannes ákvað að gefa syni sínum tækifærið á síðustu mínútum leiksins gegn Þrótturum í dag og varð Ísak þar með yngsti leikmaður í sögu ÍA.
Hann er aðeins 15 ára og 182 daga gamall en Sigurður Jónsson átti metiðen hann var 15 ára og 300 daga gamall.
Ísak hefur gert góða hluti í 2. flokki líka en liðið varð Íslandsmeistari á dögunum. Hann var því ánægður með tækifærið í dag.
„Tilfinningin er góð bara og skemmtilegt að fá bónus í síðasta leik eftir að hafa staðið sig vel í 2. flokk. Maður uppsker eftir sem maður leggur sig fram," sagði Ísak.
„Ég ætla standa mig vel með ÍA og vonandi koma einhver tækifæri en ég tek það fram að ég legg allt mitt fram með ÍA," sagði hann í lokin.
Athugasemdir