banner
   lau 22. september 2018 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Áttum skilið þá refsingu að fá eitt stig
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United á Englandi, var ósáttur með að fá aðeins eitt stig úr leiknum gegn Wolves í dag.

Manchester United komst yfir með marki frá brasilíska miðjumanninum Fred en Paul Pogba, sem hefur verið gagnrýndur mikið undanfarið, lagði upp markið. Joao Moutinho jafnaði metin í síðari hálfleik og þar við sat.

United er í sjötta sæti með tíu stig eftir sex leiki.

„Úrslitin voru sanngjörn. Þeir áttu skilið þetta stig og við áttum skilið þá refsingu að fá bara eitt stig," sagði Mourinho.

„Við vorum heppnir í byrjun að ná að skora fyrsta markið því þeirra nálgun á leikinn var miklu líkara fótbolta heldur en það sem við vorum að gera."

„Ég bjóst við meiru frá sóknarmönnunum mínum. Það var ekki nógu mikil hugmyndavinna, hreyfing né dýnamík í þessu hjá okkur,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner