„Tilfinningin er bara hrikalega góð, þetta er svo sem eitthvað sem við höfum haft í huganum síðan við byrjuðum í október,"
sagði Óskar Hrafn Þjálfari Gróttu eftir 4-0 sigur gegn Hugin í lokaumferð 2. deildarinnar.
sagði Óskar Hrafn Þjálfari Gróttu eftir 4-0 sigur gegn Hugin í lokaumferð 2. deildarinnar.
Lestu um leikinn: Grótta 4 - 0 Huginn
„Dásamlegt að klára þetta hérna fyrir framan dásamlega áhorfendur, með mikið af Gróttumönnum og unga stráka sem eru búnir að leggja mikið á sig."
Með sigrinum tryggði Grótta sér sæti í Inkasso deildinni á næsta tímabili.
„Já það bendir allt til þess," sagði Óskar Hrafn að lokum, aðspurður hvort hann haldi áfram með liðið á næstu leiktíð.
Hægt er að sjá allt viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir