lau 22. september 2018 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Richarlison: Neymar er átrúnaðargoðið mitt
Richarlison elskaði Neymar á sínum yngri árum
Richarlison elskaði Neymar á sínum yngri árum
Mynd: Getty Images
Richarlison, leikmaður Everton á Englandi, ræddi í viðtali um átrúnaðargoð sitt til margra ára en það er samherji hans í brasilíska landsliðinu. Neymar.

Richarlison er 21 árs gamall en hann kom til Everton frá Watford í sumar og þá spilaði hann fyrstu landsleikina á dögunum og gerði í þeim tvö mörk.

Hann er fimm árum yngri en Neymar en ræddi um það í viðtali hvernig Neymar hefur verið átrúnaðargoð hans frá því hann var 13 eða 14 ára gamall.

Þá var Neymar í Santos að gera frábæra hluti rétt áður en Barcelona keypti hann. Í dag er hann einn besti knattspyrnumaður heims en Richarlison fékk sér hanakamb eins og Neymar á sínum tíma.

„Neymar hefur verið átrúnaðargoð mitt frá því ég var lítill. Ég var alltaf að reyna að leika eftir hreyfingarnar hans og fékk mér meira að segja sömu hárgreiðslu," sagði Richarlison.

„Ég var með gulann hanakamb þegar ég var 13 eða 14 ára en það fór mér ekki vel. Ég var ekki með réttu hárvörurnar, því hárið mitt lak alltaf niður. Ég mundi eftir þessu í hádegismat þegar ég var með landsliðinu og sagði honum frá þessu og allir skellihlógu yfir þessu."

„Ég hermdi kannski með hárgreiðsluna en nú er hann byrjaður að stela dansfagninu mínu, Ég er reyndar í skýjunum með það og vonandi dansar hann sem mest,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner