Schalke 04 0 - 2 Bayern
0-1 James Rodriguez ('8 )
0-2 Robert Lewandowski ('64 , víti)
0-1 James Rodriguez ('8 )
0-2 Robert Lewandowski ('64 , víti)
Þýskalandsmeistarar Bayern München lögðu Schalke að velli, 2-0, í lokaleik dagsins í þýsku deildinni.
Það var sóknarsinnaði miðjumaðurinn frá Kólumbíu, James Rodriguez, sem kom gestunum í Bayern yfir á 8. mínútu leiksins með góðu skallamarki.
Robert Lewandowski gulltryggði sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 64. mínútu og sigur Bayern staðreynd.
Liðið er í efsta sæti með fullt hús stiga eftir fyrstu fjórar umferðirnar en Schalke í neðsta sæti með ekkert stig.
Athugasemdir