Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. september 2018 14:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ungverjaland: Fyrsta mark Kjartans í alvöru leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason er búinn að opna markareikinginn með Ferencvaros í Ungverjalandi.

Kjartan byrjaði á bekknum þegar Ferencvaros spilaði við Szeged í ungverska bikarnum. Szeged spilar í C-deildinni í Ungverjalandi en liðið er fyrsti mótherji Ferencvaros í bikarkeppninni þetta árið.

Kjartan Henry gekk í raðir Ferencvaros, sem er sigursælasta liðið í Ungverjalandi, frá Horsens í sumar. Kjartan hefur ekki verið að spila mikið í deildinni og ekki byrjað einn deildarleik hingað til. Hann byrjaði ekki í bikarnum en fékk að koma inn á um miðbik seinni hálfleiks og hann nýtti tækifærið.

Kjartan skoraði sitt fyrsta mark í alvöru leik með Ferencvaros þegar hann kom liðinu í 2-0 á 87. mínútu.

Lokatölur urðu 2-0 og eru Kjartan og félagar komnir áfram í næstu umferð bikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner