Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. september 2018 19:51
Brynjar Ingi Erluson
Van Dijk fór meiddur af velli
Joe Gomez kom inn á fyrir Virgil van Dijk
Joe Gomez kom inn á fyrir Virgil van Dijk
Mynd: Getty Images
Hinn stóri og stæðilegi varnarmaður Liverpool, Virgil van Dijk, fór meiddur af velli í 3-0 sigri liðsins á Southampton í dag.

Van Dijk fór meiddur af velli á 55. mínútu leiksins en Joe Gomez kom inná fyrir hann.

Hollenski varnarmaðurinn hefur verið magnaður í vörn Liverpool frá því hann kom til félagsins og hefur liðið þá haldið oftast hreinu á tímabilinu.

Það fór því um einhverja stuðningsmenn er hann fór meiddur af velli gegn Southampton en talið er að meiðslin séu ekki af alvarlegum toga.

Liverpool á erfða leiki framundan en liðið mætir Chelsea tvisvar auk þess sem það spilar gegn Napoli og Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner