Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 22. september 2019 17:01
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Albert fiskaði víti í sigri AZ
Albert Guðmundsson átti öfluga innkomu inn í lið AZ
Albert Guðmundsson átti öfluga innkomu inn í lið AZ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson átti góðan leik er AZ Alkmaar vann Ado den Haag 1-0 í hollensku úrvalsdeildinni í dag.

Albert hefur ekki fengið mörg tækifæri með AZ á þessari leiktíð en það kom þó á 22. mínútu er Dani De Wit meiddist og kom Albert inn í liðið.

Hann var afar líflegur í sóknarleiknum og ógnaði markinu nokkrum sinnum en það var á 73. mínútu er brotið var á honum innan vítateigs.

Teun Koopmeiners fór á punktinn og skoraði. Lokatölur 1-0 fyrir AZ sem er í 4. sæti með 13 stig.

Albert hefur nú spilað 3 leiki í hollensku deildinni á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner