Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. september 2019 18:21
Brynjar Ingi Erluson
Svíþjóð: Arnór Ingvi lagði upp mark í góðum sigri Malmö
Arnór Ingvi Traustason kom af bekknum og lagði upp mark
Arnór Ingvi Traustason kom af bekknum og lagði upp mark
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason lagði upp mark í 3-0 sigri Malmö á Elfsborg í dag.

Arnór hefur verið öflugur með Malmö á síðustu vikum en hann byrjaði þó á bekknum í dag.

Hann kom inná á 64. mínútu og lagði svo upp þriðja mark Malmö á 84. mínútu.

Malmö er með 50 stig í 2. sæti eftir sigurinn, aðeins þremur stigum á eftir Djurgården.

Daníel Hafsteinsson var þá ónotaður varamaður er Helsingborg vann 2-1 sigur á Eskilstuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner