Fotbolti.net
22.09.20 - 15:00
Magnús Már Einarsson

„Draumakaup fyrir stuðningsmenn Liverpool"

„Draumakaup fyrir stuðningsmenn Liverpool"
Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Þetta eru draumakaup fyrir stuðningsmenn Liverpool að fá þennan mann inn,"</I> sagði Hlynur Valsson, lýsandi hjá Síminn Sport, í hlaðvarpsþættinum, þar sem rætt var um Thiago Alcantara.

Thiago kom til Liverpool frá Bayern Munchen á tuttugu milljónir punda síðastliðinn föstudag.

<i>„Þetta er gæi sem hefur verið góður alls staðar þar sem hann hefur spilað. Hann hefur unnið allt og smellur fullkomlega inn í þetta lið. Hann er nýbúinn að skrifa undir, kemur inn á hálfleik og á geggjaðan leik. Þetta er of gott til að vera satt fyrir Liverpool."</I>
Thiago kom inn á í hálfleik í 2-0 útisigri Liverpool gegn Chelsea um helgina og átti góða byrjun með Englandsmeisturunum.

„Ég elska karakterinn í þessum strák. Mér finnst það skína í gegn. Þetta er karakter sem er með hugarfarið 100% á réttum stað. Hann peppar aðra leikmenn í gang. Hann er betri varnarmaður en margir halda. Hann er að kasta sér fyrir boltann og vinna hann," sagði Gunnar Ormslev um Thiago.

Hér að neðan má hlusta á hlaðvarpsþáttinn "Enski boltinn" í heild.

<b>Enski boltinn</b> - Markaregn og Liverpool á flugi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.