Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. október 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Will Ferrell hélt uppi fjörinu gegn Vancouver
Mynd: Getty Images
Will Ferrell er mikill áhugamaður um fótbolta og styður hann Los Angeles FC í bandarísku MLS deildinni og á hlut í félaginu.

Hann mætti því vitaskuld á gífurlega mikilvægan leik liðsins gegn Vancouver Whitecaps í næstsíðustu umferð deildakeppninnar í gær.

Ferrell lét sér ekki leiðast á leiknum og hélt hann stuði í stuðningsmönnum í dágóðan tíma eins og er hægt að sjá á myndbandinu hér neðar.

Leiknum lauk með 2-2 jafntefli þar sem Úrúgvæinn ungi Diego Rossi kom heimamönnum tveimur mörkum yfir á fyrsta stundarfjórðungi leiksins, en það dugði ekki til.

Los Angeles er í öðru sæti Vesturdeildarinnar fyrir lokaumferðina þar sem liðið mætir Sporting Kansas í toppslag.

Tvö efstu sætin veita beinan þátttökurétt í annað stig úrslitakeppninnar. Los Angeles þarf því sigur í toppslagnum sem fer fram næsta sunnudag.



Athugasemdir
banner
banner
banner