banner
   mán 22. október 2018 17:41
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo segist ánægður: Sannleikurinn mun koma upp á yfirborðið
Ronaldo og Mayorga, kvöldið sem hún segir að Ronaldo hafi nauðgað sér.
Ronaldo og Mayorga, kvöldið sem hún segir að Ronaldo hafi nauðgað sér.
Mynd: Twitter
Cristiano Ronaldo snýr aftur á Old Trafford á morgun þegar hann leikur með Juventus gegn Manchester United á Old Trafford.

Ronaldo sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag en þar var hann meðal annars spurður út í þær ásakanir að hann hafi nauðgað Kathryn Mayorga í Las Vegas árið 2009.

„Ég er ánægður einstaklingur. Við gáfum út yfirlýsingu fyrir tveimur vikum," sagði Ronaldo en hann heldur fram sakleysi sínu og segir að hann láti þessar ásaknir ekki hafa áhrif á líf sitt.

„Auðvtað er ég ekki að fara að ljúga í þessari stöðu. Lögfræðingar mínir eru bjartsýnir og ég er það líka."

„Mikilvægast er að ég nýt þess að spila fótbolta og nýt lífsins. Ég hef fólk sem hugsar um mig. Sannleikurinn mun alltaf koma upp á yfirborðið."

„Ég veit að ég er fyrirmynd, 100 prósent, innan vallar og utan vallar. Ég brosi alltaf. Ég er í frábærum málum. Ég spila fyrir magnað félag, ég á stórkostlega fjölskyldu, ég er heilbrigður. Ég hef allt. Hitt skiptir mig ekki máli," sagði Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner