Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 22. október 2018 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Aubameyang kláraði magnaða sókn
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Arsenal hafa ástæðu til að vera ánægðir um þessar mundir en liðið er búið að vinna tíu leiki í röð undir stjórn Unai Emery sem tók við félaginu í sumar.

Þetta er í fyrsta sinn sem liðið vinnur tíu leiki í röð í rúman áratug, en tíundi sigurleikurinn kom gegn Leicester fyrr í kvöld.

Útlitið var þó ekki sérlega jákvætt á Emirates þegar Leicester komst verðskuldað yfir eftir fyrsta hálftíma leiksins. Það var þá sem Arsenal vaknaði til lífsins og byrjaði að spila glimrandi skemmtilegan sóknarbolta.

Mesut Özil jafnaði fyrir leikhlé og kom Pierre-Emerick Aubameyang inná í síðari hálfleik. Aubameyang kom sínum mönnum yfir og innsiglaði svo sigurinn eftir glæsilega sókn sem byrjaði á aftasta manni.

Sóknina mögnuðu er hægt að sjá með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner