mán 22. október 2018 19:27
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: thorsport 
Sveinn Elías framlengir við Þór
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sveinn Elías Jónsson er búinn að framlengja samning sinn við Þór og því er ljóst að þessi mikli leiðtogi verður áfram á Akureyri næsta sumar.

Sveinn Elías, sem er 32 ára sóknarmaður, hefur leikið fyrir Þór síðustu tíu árin. Hjá Þór hefur hann skorað 43 mörk í 203 leikjum og er fyrirliði félagsins.

Svenni lék 18 leiki í Inkasso-deildinni á nýliðnu tímabili er Þórsarar enduðu í þriðja sæti, fimm stigum frá Pepsi-deildarsæti.

„Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu mikill styrkur það er fyrir klúbbinn að hafa slíka menn eins og Svein Elías innan sinna raða. Hokinn af reynslu," segir meðal annars á vefsíðu Þórs.

Svenni lék fyrir Leiftur/Dalvík og KA áður en hann gekk í raðir Þórs haustið 2008.
Athugasemdir
banner
banner