Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. október 2018 18:50
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Rosengård endurheimti toppsætið á ögurstundu
Anja Mittag gerði sigurmark Rosengård.
Anja Mittag gerði sigurmark Rosengård.
Mynd: Getty Images
Rosengård 1 - 0 Piteå
1-0 Anja Mittag ('25)

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar er Rosengård tók á móti Piteå í toppslag sænsku deildarinnar.

Um gríðarlega mikilvægan leik var að ræða enda mættust liðin í næstsíðustu umferð tímabilsins. Piteå var með þriggja stiga forystu á toppnum fyrir upphafsflautið.

Anja Mittag gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik og tókst Rosengård þannig að jafna Piteå á stigum á toppnum.

Rosengård er með talsvert betri markatölu og nægir sigur í lokaumferðinni til að tryggja sér titilinn í fyrsta sinn síðan 2015.
Athugasemdir
banner
banner