Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. október 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: https://www.vestri.is/knattspyrna/Thordur_Gunnar_Hafthorsson_framlengir_samning_sinn_vid_Vestra/ 
Þórður Gunnar framlengir við Vestra
Mynd: Vestri
Vestri samdi við fjóra lykilmenn í fyrradag og bættist sá fimmti við í gær, en þá var samið við Þórð Gunnar Hafþórsson.

Þórður framlengir til tveggja ára, líkt og liðsfélagar sínir fjórir, og eru þeir því allir samningsbundnir til 2020.

Þórður er mikið efni. Hann er fæddur 2001 og hefur þegar spilað 40 leiki fyrir meistaraflokk Vestra auk leikja fyrir yngri landslið Íslands.

„Það er okkur gríðarleg ánægja að tilkynna að Þórður ætli að taka slaginn með okkur áfram og koma liðinu upp í Inkasso á næsta ári," segir í yfirlýsingu frá Vestra.

Vestri endaði í þriðja sæti 2. deildar í sumar og rétt missti af sæti í Inkasso-deildinni. Aðeins eitt stig skildi liðið að frá Gróttu í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner