Fotbolti.net
22.10.22 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Ten Hag vill ekki selja Ronaldo - „Treysti á hann út tímabilið"

Cristiano Ronaldo snýr væntanlega aftur gegn Sheriff

Cristiano Ronaldo snýr væntanlega aftur gegn Sheriff

Canon

Mynd: Getty Images

Erik ten Hag, stjóri Manchester United, vill ekki selja Cristiano Ronaldo frá félaginu í janúarglugganum en hann vonast til að leikmaðurinn verði með gegn Sheriff í Evrópudeildinni í næstu viku.
Ronaldo æfði ekki með aðalliðinu í gær og mun því ekki spila gegn Chelsea síðar í dag.

Hann neitaði að koma inná undir lokin í 2-0 sigrinum á Tottenham Hotspur og yfirgaf svo leikvanginn áður en flautað var til leiksloka.

Ten Hag neyddist því til að setja Ronaldo í agabann en þetta er í annað sinn sem portúgalski leikmaðurinn gerir þetta síðan Ten Hag tók við.

Hollendingurinn býst við að Ronaldo verði klár fyrir leik United gegn Sheriff í Evrópudeildinni í næstu viku. Hann vill alls ekki missa hann og treystir á að hann spili með liðinu út tímabilið.

Ronaldo er væntanlega farinn að hugsa sér til hreyfings fyrir janúargluggann en það verður að koma í ljós hver framtíð hans verður.

„Cristiano er að æfa til að halda sér í formi svo hann verði klár fyrir næsta leik gegn Sheriff."

„Mætir hann aftur á mánudag? Við munum ræða saman fyrst. Verður hann lengur en það? Ég held ekki, því ég vil ekki vera án hans. Ég vil að hann sé í hópnum og verði með því hann hefur mikil áhrif."

„Ég treyst á að Cristiano Ronaldo verði með okkur út tímabilið. Hann er ekki með í þessum leik og svo höldum við áfram. Hann verður áfram mikilvægur hluti af hópnum,"
sagði Ten Hag.

<b>Enski boltinn</b> - Að telja sig vera stærri en félagið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.