Fotbolti.net
22.11.19 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Subway

England um helgina - Fyrsti leikur Mourinho

Jose Mourinho er tekinn við Tottenham.

Jose Mourinho er tekinn við Tottenham.

Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho er mættur aftur í ensku úrvalsdeildina og stýrir Tottenham í fyrsta sinn í hádegisleiknum á morgun.
Mauricio Pochettino var rekinn á þriðjudagkskvöld og á miðvikudagsmorgun var tilkynnt um ráðningu á Mourinho, fyrrum stjóra Chelsea og Manchester United.

Tottenham sækir West Ham heim klukkan 12:30 á morgun. Fyrir leikinn er Spurs í 14. sæti og West Ham í 16. sæti.

Það eru alls átta leikir á laugardaginn. Arsenal mætir Southampton, og Liverpool sækir heim Crystal Palace í leikjunum sem hefjast klukkan 15. Íslendingaliðin Everton og Burnley eiga einnig leiki á þeim tíma.

Stórleikur helgarinnar hefst klukkan 17:30 á morgun, en þá mætast Man City og Chelsea í Manchester.

Á sunnudaginn er einn leikur, Manchester United heimsækir spútniklið Sheffield United.

Fótboltahelgin á Englandi klárast svo á mánudaginn með leik Aston Villa og Newcaslte.

laugardagur 23. nóvember
12:30 West Ham - Tottenham (Síminn Sport)
15:00 Everton - Norwich
15:00 Watford - Burnley
15:00 Arsenal - Southampton
15:00 Brighton - Leicester
15:00 Crystal Palace - Liverpool (Síminn Sport)
15:00 Bournemouth - Wolves
17:30 Man City - Chelsea (Síminn Sport)

sunnudagur 24. nóvember
16:30 Sheffield Utd - Man Utd (Síminn Sport)

mánudagur 25. nóvember
20:00 Aston Villa - Newcastle (Síminn Sport)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+721
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-88
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.