Fotbolti.net
22.11.19 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Klopp: Shaqiri á auðvitað framtíð hérna

Xherdan Shaqiri.

Xherdan Shaqiri.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var á fréttamannafundi í dag spurður út í framtíð Xherdan Shaqiri hjá félaginu.

Svissneski vængmaðurinn hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa og aðeins spilað fjóra leiki á tímabilinu,
„Þetta snýst um að hann geti æft með okkur. Það tekur tíma að öðlast leikæfingu, hann hefur verið frá í fimm vikur. Hann hefur verið að æfa í þessari viku," segir Klopp.

„Það liggur ekkert á en hann sýndi flotta hluti á æfingum."

„Það eru utanaðkomandi aðilar sem eru að velta fyrir sér framtíð hans. Við ræddum saman fyrr á tímabilinu, þá var hann ekki að spila eins mikið og hann vildi. Þegar ég er með honum er hann mjög ánægður. Vangaveltur eru vangaveltur. Auðvitað á hann framtíð hérna."

Liverpool er með örugga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en liðið mætir Crystal Palace á morgun.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.