Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. nóvember 2022 08:30
Elvar Geir Magnússon
Grét allan daginn áður en hann spilaði á HM
Mynd: Getty Images
Neco Williams, leikmaður Nottingham Forest og Wales, gekk í gegnum virkilega erfiðan dag. Hann er með velska landsliðinu í Katar en fékk þau tíðindi að afi hans væri látinn.

Í færslu á Twitter segir þessi 21 árs leikmaður að þetta hafi verið erfiðustu fréttir sem hann hafi fengið á lífsleiðinni.

„Að fara úr því að gráta allan daginn í að byrja leik á HM var gríðarlega erfitt en ég komst í gegnum það með stuðningi liðsfélaga minna og fjölskyldu," skrifar Williams.

Hann lék með Wales í 1-1 jafntefli gegn Bandaríkjunum í gær. Tilfinningarnar báru hann ofurliði þegar leikurinn var flautaður af en hann benti til himins til minningar um afa sinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner