banner
   þri 22. nóvember 2022 12:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Piers Morgan fljótur að birta mynd af niðurlútum Messi
Messi niðurlútur.
Messi niðurlútur.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi og félagar í Argentínu byrja ekki vel á þessu heimsmeistaramóti, bara alls ekki.

Það bjuggust allflestir við stórsigri Argentínu gegn Sádí-Arabíu í dag, en úr urðu einhver óvæntustu úrslit í sögu HM.

Það hafa fáir eins gaman að þessum úrslitum og fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan.

Hann er mikill aðdáandi Cristiano Ronaldo og hefur verið duglegur við það að sleikja upp portúgölsku ofurstjörnuna á síðustu dögum eftir að hann tók stórt viðtal við Ronaldo.

„Úps," skrifar Morgan einfaldlega við mynd af niðurlútum Messi á Twitter en það hefur verið hávær umræða um það síðustu árin um það hvort annar hvor þeirra sé besti fótboltamaður sögunnar.

Ronaldo og félagar í Portúgal mæta Gana í fyrsta leik sínum á fimmtudaginn.


Athugasemdir
banner
banner
banner