Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 22. desember 2022 18:38
Brynjar Ingi Erluson
FIFA rannsakar uppátæki saltkóngsins
Salt Bae mátti ekki koma við HM-styttuna en gerði það samt
Salt Bae mátti ekki koma við HM-styttuna en gerði það samt
Mynd: Instagram
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfarið umræðu um tyrkneska matreiðslumanninn Nusret Gökçe, en sambandið rannsakar nú uppátæki hans á úrslitaleik HM í Katar.

Saltkóngurinn var gestur Gianni Infantino, forseta FIFA, á leiknum, en eftir að flautað var til leiksloka fór hann inn á völlinn og braut reglur sambandsins.

Nusret, sem er best þekktur sem Salt Bae, tók myndir af sér með leikmönnum Argentínu og meðhöndlaði þá HM-styttuna frægu. Hann bæði hélt á styttunni, kyssti hana og beit þá í medalíu varamarkvarðarins, Franco Armani.

Samkvæmt reglum FIFA mega aðeins sigurvegarar HM og þjóðhöfðingjar snerta styttuna og braut hann því þessa reglu sambandsins.

Salt Bae hefur síðustu daga verið gagnrýndur af fjölmiðlum og sambandið sérstaklega fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir slík uppátæki.

FIFA rannsakar nú meint brot Nusret Gökçe en þetta segir talsmaður sambandsins.

„Eftir að hafa skoðað málið nánar þá rannsakar FIFA nú hvernig einstaklingar fengu óréttmætan aðgang að vellinum eftir lokaathöfnina á Lusail-leikvanginum þann 18. desember. Sambandið mun grípa til viðeigandi aðgerða,“ sagði talsmaður FIFA.

Sjá einnig:
Hrauna yfir saltkónginn - „Hvað í andskotanum er hann að gera þarna?
Saltkóngurinn braut reglur FIFA
Athugasemdir